ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EITT HÁLFKÁKIÐ ENN?

12:02 › 26. september 2009


Ég heyrði áðan ágætt viðtal Hallgríms Thorsteinssonar við Þorvald Gylfason í Vikulokunum á Rás eitt. Þar kom fram að Þorvaldur teldi sig hafa ástæðu til að ætla að niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis, sem birt verður eftir mánuð, verði hálfgert hálfkák.

Nefndin myndi ekki ganga mjög langt í sínum útlistunum á orsökum bankahrunsins og bera við tímaskorti.

Bæði auðmenni vor og stjórnmálaleiðtogar myndu sleppa frekar billega.

Ekki nefndi Þorvaldur af hverju grunsemdir hans væru runnar.

Ég vona svo sannarlega að þetta reynist ekki rétt hjá honum. En vitanlega dró það verulega úr trúverðugleika rannsóknarnefndarinnar þegar tveir nefndarmenn reyndu að þvinga þann þriðja, Sigríði Benediktsdóttur, úr nefndinni fyrir fáein almenn orð sem hún lét falla í viðtali við amerískt skólablað.

Eftir að málið komst í hámæli lyppuðust tvímenningarnir niður en þetta mál hefur aldrei verið útkljáð fyrir opnum tjöldum.

Sem þó ætti að gera.

Rannsóknarnefnd sem ætlað er að upplýsa sannleikann má ekki fara sjálf sparlega með sannleikann.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?