Það er rétt hjá Agli (sjá hér) að ráðning Davíðs Oddssonar á Moggann má einna helst líkja við ef Richard Nixon hefði verið ráðinn ritstjóri Washington Post eftir að hann neyddist til að segja af sér forsetaembættinu með skömm.
Að maðurinn sem einkavinavæddi bankana, innleiddi skefjalausa nýfrjálshyggju á Íslandi, potaði vinum sínum og þrælslunduðum þjónum alls staðar þar sem nokkur staða var laus, skildi eftir sig allt í rúst og gerði Seðlabankann gjaldþrota, skuli vera talinn rétti maðurinn til að stýra áhrifamiklu dagblaði er svo idjótísk hugmynd að ég mundi þegja vandlega um hana ef fólk á leið til útlanda á næstunni.
Fólk í útlöndum mun ekki skilja "snilldina" við þessa hugmynd.
En fólk í útlöndum þekkir heldur ekki Davíð.
Enda er þar allt á uppleið meðan hér verður lengi enn sviðin jörð.
Blogg
ÞEGJUM UM ÞETTA Í ÚTLÖNDUM!
09:53 › 25. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
