ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HALLDÓR SNÝR AFTUR - MEÐ HVELLI!

10:59 › 25. september 2009


Halldór Halldórsson hefur ýmsa fjöruna sopið í íslenskri blaðamennsku. Hann var og vildi vera brautryðjandi í rannsóknarblaðamennsku. Og margt skrifaði hann merkilegt á sínum tíma.

Mestum hvirfilbyl lenti Halldór í þegar hann var ritstjóri Helgarpóstsins sáluga og fór að skrifa um Hafskip undir stjórn Björgólfs Guðmundssonar.

Í byrjun virtist hann koma upp um sukk og fjármálaóreiðu, gott ef ekki lögbrot Hafskipsmanna.

Og þeir voru dregnir fyrir dóm.

Þegar mun minna varð úr ákærum gegn Hafskipsmönnum en lagt var upp með kviknuðu grunsemdir um að Halldór hefði farið offari.

Hafði hann bara verið verkfæri gamla kolkrabbans í Eimskipafélaginu sem vildi losa sig við skæðan keppinaut?

Það vissum við ekki, en Halldór hvarf af sjónarsviði í langan tíma.

Nú skýst hann fram í dagsljósið aftur og það með hvelli.

Frásögn hans og blaðamanna DV af uppgangi Björgólfs-feðga í Rússlandi fyllir margar síður í Helgarblaði DV í dag en er "skyldulesning" eins og það heitir nútildags.

Sumt af þessu höfum við heyrt áður, en aldrei í þessum smáatriðum. Og þarna er margt sem við höfum ekki haft hugmynd um.

Ég hef auðvitað ekki forsendur til að meta hvort alveg allt sé fullkomlega 100 prósent í frásögninni, en þó það væri ekki nema brot ...!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?