Þegar Jóhanna móðir mín byrjaði á Mogganum 1968 eða ´69, þá var þar ungur og snaggaralegur blaðamaður að nafni Freysteinn Jóhannsson.
Þegar við krakkarnir komum niður á Mogga, sem þá var í Aðalstræti, hittum við Freystein oft og hann kom fyrir sjónir sem kátur og lífsglaður maður.
Árum og áratugum saman var hann ein helsta stoðin undir því orðspori sem Mogginn aflaði sér sem langbesta fréttablaðið á Íslandi.
Hvað sem leið pólitík, þá hafði Mogginn óumdeilda yfirburði í fréttamennsku, enda ritstjórnin þar mun fjölmennari en ritstjórnir annarra dagblaða.
Þegar ég varð sjálfur blaðamaður leit maður með blendnum huga til Moggans. Mig langaði aldrei að vinna þar, því ég óttaðist að það væri eins og að hverfa inn í bákn, sem myndi þurrka út öll einstaklingseinkenni.
En að fá starf á Mogganum var nánast eins og fá æviráðningu hjá hinu opinbera. Ef maður stóð sig sæmilega gat maður búist við því að sitja á Mogganum til æviloka.
Því Mogginn hugsaði um sitt fólk í þá daga.
Mamma hætti á Mogganum fyrir rúmum 10 árum. Það var fáheyrt að blaðamaður á miðjum aldri gæfi sjálfviljugur upp á bátinn öryggið sem maður taldi felast í starfi á Mogganum.
Freysteinn var hins vegar áfram, og hann er nú löngu kominn í hóp elstu starfsmanna á ritstjórn.
Upp á síðkastið hefur hann aðallega sinnt viðtölum, hefur mér sýnst, en þau skrifar hann listavel í klassískum anda.
En nú hefur hann verið rekinn í fjöldauppsögnum, segir Dv.is. Með því sker Mogginn á mjög mikilvæg tengsl við sögu sína og hefðir. Hann heggur upp rætur sínar, mætti kannski segja.
Rétt eins og þegar Árni Jörgensen útlitsstjóri er rekinn. Hann hefur líka verið á Mogganum í áratugi.
Það voru menn eins og Freysteinn og Árni, fagmenn sem unnu sín störf af alúð, sem tryggðu Mogganum þá yfirburði í útbreiðslu sem hann naut svo lengi.
En ekki skrif blaðsins um pólitík.
Og nú heyri ég að Birni Vigni Sigurpálssyni fréttastjóra hafi líka verið sagt upp.
Allt sem hér hefur verið sagt að ofan gildir svo sannarlega líka um hann.
Blogg
MOGGINN SKER Á RÆTUR SÍNAR
11:32 › 24. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
