Eftir að Eva Joly kom til sögunnar á útmánuðum virtist sérstökum saksóknara um stund hlaupa nokkurt kapp í kinn.
Ríkisstjórninni virtist umhugað um að fara að tilmælum Joly um að stórefla rannsóknina á mögulegum lögbrotum í tengslum við starfsemi banka og annarra útrásarfyrirtækja.
Og aukinn dugur færðist líka í Fjármálaeftirlitið.
En núna er liðið heilt ár frá hruninu og 7-8 mánuðir síðan ný ríkisstjórn tók við með hástemmdum yfirlýsingum um að taka til hendinni við rannsókn málsins.
Ég veit að þetta eru flókin mál. Ég veit að meira að segja Eva Joly hefur brýnt fyrir okkur að vera ekki óþolinmóð, svona mál taki tíma.
En er samt ekki eitthvað skrýtið við að heilu ári eftir hrunið hafi ekki eitt mál verið útkljáð? Hvorki smátt né stórt?
Ég á til dæmis erfitt með að trúa því að það sé voðalega flókið eða tímafrekt að komast að því hvort þetta hér sé rétt.
Blogg
HEILT ÁR OG EKKI NEITT
08:26 › 24. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
