Kannski var Glitnir þegar dauðadæmdur, er stjórnarformaðurinn Þorsteinn Már Baldvinsson ákvað að reyna að bjarga bankanum fyrir ári síðan með því að leita til Seðlabankans.
Já, ég veit fullvel að sjálfsagt hefði ekkert getað bjargað honum.
En það vissu menn samt ekki þá. Ekki fyrir víst. Og það vissu Seðlabankamenn ekki heldur, ekki fyrir víst, því beiðni Glitnismanna var afgreidd á mjög yfirborðskenndan hátt.
Seðlabankastjóri ákvað bara að taka yfir 75 prósent bankans.
Þorsteinn Már Baldvinsson reif hár sitt og skegg. Hann og fleiri Glitnismenn hömruðu á að ef svona yrði farið að, myndi traust á öllum íslensku bönkunum gufa upp í einu vetfangi og þeir hlytu að hrynja.
Seðlabankastjórinn hlustaði ekki.
En allt fór eins og Þorsteinn Már og félagar höfðu spáð. Hrunið var algjört.
Ekki veit ég hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir hrunið. En það var altént ekki reynt af neinni yfirvegun.
Af því að Seðlabankastjóri vildi það ekki.
Núna lúpast Þorsteinn Már með hinum sægreifunum, félögum sínum, til að ráða þennan sama Seðlabankastjóra ritstjóra yfir Mogganum.
Manninn sem slátraði bankanum hans og kom með því hruninu af stað, auk þess að hafa gatað svo jörðina síðustu árin að nálega allt íslenskt samfélag hrundi niður í holuna.
Þetta á ekki að gera af því þessi Seðlabankastjóri sé svo flinkur blaðamaður að honum sé treystandi til að snúa við botnlausum taprekstri Moggans.
Heldur af því ... ja, það er nú það. Ég á voðalega erfitt með að skilja af hverju.
Jú, það á að snúa við blaðinu og nota Moggann héðan í frá miskunnarlaust til að reka áróður gegn ESB. Af því sá þröngi hópur sægreifa sem fékk að hirða Moggann eftir að afskrifaðar höfðu verið þrjú þúsund milljónir af skuldum hans, þeir ímynda sér að það verði vont fyrir þeirra eigin buddu ef Ísland gengur í ESB.
En af hverju er nauðsynlegt að ráða Davíð Oddsson til þess?
Manninn sem ber líklega meiri ábyrgð á hruninu en nokkur annar einstaklingur?
Það skil ég ekki.
En þetta lætur Þorsteinn Már Baldvinsson yfir sig ganga.
Ekki veit ég hvort það skiptir máli í þessu sambandi en tíu ára sonur minn er nýbúinn að læra orðið "heybrók" og notar það nú við hvert tækifæri.
Blogg
ER GAMAN Í DAG, ÞORSTEINN MÁR?
13:08 › 24. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
