Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra er gífurlega bjartsýnn maður.
Það er hans helsti kostur, en bjartsýni getur vissulega stundum komið í hausinn á manni.
Þegar kreppan hófst fyrir ári var Össur iðnaðarráðherra og hvatti fólk óspart til að láta ekki hugfallast.
Þótt fjármálakerfi landsins væri úr sögunni myndum við finna nýjar stoðir undir efnahagslífið, og til dæmis væri hann sannfærður um að olíuvinnsla á Drekasvæðinu yrði innan fárra ára orðin gríðarleg tekjulind fyrir okkur.
Nú lítur vægast sagt ekki vel út með það.
Þau sárafáu fyrirtæki sem báru við að leita að olíu á Drekasvæðinu hætta nú við hvert af öðru.
Sjá hér.
Þetta þykir mér súrt í broti, enda vonaði ég heitt og innilega líkt og Össur að við gætum brátt farið að ausa upp olíunni hér fyrir norðan og austan land.
Og þá létum við á SKAKKA TURNINUM útbúa í desember-hefti blaðsins þessa fallegu mynd af Össuri frænda mínum þegar hann væri orðinn hinn íslenski olíumálaráðherra.
Blogg
VERÐUR ÖSSUR ÞÁ EKKI OLÍURÁÐHERRA?
12:35 › 23. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
