ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SÝNUM NÚ ÓLAFI RAGNARI SANNGIRNI

18:28 › 23. september 2009


Á öllum bloggsíðum hefur Ólafur Ragnar Grímsson forseti beinlínis verið kjöldreginn í dag fyrir ummæli á útvarpsstöð Bloombergs í New York sem hafa verið túlkuð þannig að hann hafi verið að bera blak af íslensku bönkunum.

Til dæmis æpir Pressan hér að hann hafi sagt að íslensku bankarnir hafi "ekkert gert rangt".

Eigum við nú ekki öll að halda okkur fast?

Hann var ekkert að segja að bankarnir hefðu ekki gert neitt rangt. Í þeim bútum sem ég hef heyrt af viðtalinu við Ólaf Ragnar, þá sagði hann ekkert annað en að bankarnir hefðu starfað eftir evrópsku regluverki.

Sem þeir gerðu auðvitað. Þeir kunna að hafa brotið regluverkið, og reyndar er nokkuð augljóst að að minnsta kosti einhverjir þeirra hafa gert það ansi rösklega, en þetta var nú samt regluverkið sem þeir störfuðu eftir.

Og ástæðan fyrir því að Ólafur Ragnar tók þetta fram var, heyrðist mér, sú að í framhaldinu sagði hann að eftirlitsregluverkið hefði þrátt fyrir það ekki dugað til að hafa hemil á þeim.

Hann hélt því ekki fram að bankarnir hefðu "ekki gert neitt rangt", heyrðist mér, þó hann tæki svo til orða. Ég gat ekki lesið það út úr orðum hans.

Ég hef svo sannarlega gagnrýnt Ólaf Ragnar á við hvurn sem er, og full ástæða til, en reynum nú að sýna honum sanngirni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?