Viðar Hreinsson er ekki að skafa utan af því þegar hann skammaði fræðimenn á málfundi Sagnfræðingafélagsins fyrir að hafa ekki gagnrýnt "vitfirrt gjálfur" Ólafs Ragnars Grímssonar forseta um "eðlisþætti Íslendinga" umfram aðrar þjóðir.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu, sjá hér.
Viðar Hreinsson er framkvæmdastjóri Reykjavíkurakademíunnar, menntaður í íslensku og bókmenntum og líklega kunnastur fyrir vandaða ævisögu sína um Stephan G. Stephansson. Hann hefur setið í dómnefndum menningarverðlauna DV í flokki fræða, og er öllum hnútum kunnugur í fræðasamfélaginu.
Ólafur Ragnar er sjálfur fræðimaður og hefur hingað til verið eins og fiskur í vatni meðal háskólafólks.
Mig grunar að þó gagnrýni Viðars hafi raunar ekki síður beinst að fræðimönnunum sjálfum en forsetanum, þá hljóti skot úr þessari átt að vera Bessastaðabónda einstaklega þungbært.
Blogg
HIÐ "VITFIRRTA GJÁLFUR" FORSETANS
10:10 › 23. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
