ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VÉLAÐ MEÐ MOGGANN

07:32 › 22. september 2009


Í DV í dag er rakin spillingarsagan um það þegar þrjú þúsund milljónir voru afskrifaðar af skuldum Moggans til að koma mætti honum í hendur aðila sem þóknanlegir voru lítilli klíku í Sjálfstæðisflokknum.

Sú saga er ljótari en mig minnti, eða ég hafði hugmynd um.

Ég vissi til dæmis ekki að Ástralinn, sem reyndi að kaupa Moggann, hefði ekki gert kröfur um neinar afskriftir.

Hann hafði í reynd engan áhuga á Mogganum, en ásældist prentsmiðjuna sem er víst ein hin öflugasta í Evrópu.

Henni ætlaði sá ástralski að útvega verkefni, en láta ritstjóra Morgunblaðsins afskiptalausa.

Þetta hefði verið mjög ákjósanlegt fyrirkomulag, en hentaði ekki Sjálfstæðisflokknum.

Í frásögn DV kemur fram að "innmúraðir og innvígðir" sjálfstæðismenn voru á öllum póstum þegar vélað var með Moggann, og komið í veg fyrir að Ástralinn eignaðist hann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?