ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NEISTINN Í SAMFYLKINGUNNI

10:18 › 22. september 2009


Ég rakst um daginn á forystumann í Samfylkingunni og fór að messa yfir honum þar sem hann var blásaklaus að kaupa í matinn handa fjölskyldu sinni.

Það hefði ég kannski ekki átt að gera. Vissulega bjóða þeir sem leggja fyrir sig stjórnmál upp á að fólk víki sér að þeim hvar sem er, og hafi skoðanir á verkum þeirra, en ég fékk nú soldinn móral yfir þessu samt.

Hins vegar er ég eftir sem áður alveg sáttur við inntakið í messunni.

Hún gekk aðallega út á að Samfylkingin hefði ekki tekið að sér raunverulegt forystuhlutverk í samfélaginu, þó mig minnir að ég hafi orðað það öðruvísi þarna í matarbúðinni.

Samfylkingin er stærsti flokkurinn á þingi og hefur forsætisráðuneytið í ríkisstjórninni og ég dreg ekkert í efa að ráðherrar hennar og aðrir forystumenn vilji vinna sín verk af samviskusemi.

En maður veit bara ekki nógu mikið um hver þau eru.

Og alveg sérstaklega hefur maður frekar óljósa hugmynd um þá hugmyndafræði sem býr að baki.

Jú, styðja velferðarkerfið, gott og vel. En hvað annað?

Samfylkingarmenn eru smátt og smátt að fá á sig orð fyrir "spuna". Ég veit að þeim þykir það ósanngjarnt, og vísast er það það að einhverju leyti. Því miður hafa fleiri flokkar en Samfó ekki notað tækifærið til að taka upp gjörbreytt vinnubrögð, sem útrýma myndi spunastimplinum.

Ég held að ástæðan fyrir því að Samfylkingin er að fá á sig þetta orð sé ekki sú að flokkurinn hagi sér eitthvað verr en aðrir flokkar. Heldur frekar af því fólki finnst vanta í þennan flokk einhverja þá hugsjón sem hægt sé að festa hendur á.

En ef Samfylkingin ætlar að verða einhvers konar leiðarljós landsmanna á þeim erfiða vetri þá þarf hún að byrja á því að finna neistann í sjálfri sér.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?