ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ENN Í FULLU FJÖRI

15:39 › 22. september 2009


Ég sé að Ragnar Bjarnason er að halda upp á 75 ára afmælið sitt, og er auðvitað í fullu fjöri að syngja.

Til lukku með það!

Þegar ég var táningur kringum 1975 var Raggi Bjarna ekki beinlínis í tísku. Ég heyrði oft í honum í útvarpinu en annars varð maður ekki mikið var við hann.

Ég leit svo á að þetta væri rödd úr fjarlægri fortíð.

Ósjálfrátt fór maður að líta svo á að þessi maður hlyti að vera háaldraður, ef hann væri þá ekki bara löngu dauður.

Þá hefur Ragnar verið nýskriðinn yfir fertugt.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?