ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MOGGANN EKKI FRAMAR Á MITT HEIMILI

20:02 › 21. september 2009


Ef það er rétt - sem ég trúi varla ennþá - að Óskar Magnússon og kvótakóngarnir ætli að gera Davíð Oddsson að ritstjóra Morgunblaðsins, þá vil ég fá endurgreiddan minn hlut í þeim þremur milljörðum sem útgáfufélagi blaðsins voru gefnar eftir af almannafé til að það þyrfti ekki að fara á hausinn.

Þangað sem Mogginn stefndi bráðbeint eftir bruðl og óstjórn síðustu missera Styrmis Gunnarssonar á blaðinu.

Ég sætti mig við að ríkið afskrifaði þessar krónur fyrir mína hönd með þeim röksemdum að Morgunblaðið undir stjórn Ólafs Stephensens væri á mjög réttri braut og það væri nauðsynlegt fyrir íslenska fjölmiðlun að afskrifa þessar skuldir svo blaðið gæti haldið áfram að koma út.

En málið lítur allt öðruvísi út þegar Ólafur Stephensen er rekinn af því kvótakóngunum (og -drottningunni) hugnast ekki skoðanir hans.

Og inn er settur í staðinn sjálfur hrunkóngurinn.

Með stuðningi þriggja milljarða króna afskrifta af almannafé á að gera honum gert kleift að útbreiða sínar þröngu skoðanir, réttlæta sjálfan sig og breiða yfir gjörðir sínar.

Með þessu - ef af verður - gerir Morgunblaðið sig í einu vetfangi algjörlega fullkomlega 100 prósent vanhæft til að fjalla um nokkurn skapaðan hlut sem að hruninu lýtur.

Eins og Egill bendir á hér er þetta ígildi þess að Jón Ásgeir gerði sjálfan sig að ritstjóra Fréttablaðsins.

Ef stjórn Árvakurs heldur að þetta sé ofboðslega sniðugt af því öllum muni þykja svo forvitnilegt að kaupa Moggann daglega til að sjá hvaða skoðanir Davíð Oddsson hefur á málunum, þá er það misskilningur.

Mér er að minnsta kosti hundsama um skoðanir Davíðs Oddssonar á öllum málum.

Og í rauninni er þetta eins og blaut tuska Óskars og kvótakónganna framan í íslenskt fólk, sem þurfti að láta yfir sig ganga að Mogganum væru gefnir þessir þrír milljarðar, svo blaðið gæti haldið áfram að koma út í nafni frjálsrar fjölmiðlunar.

En tekur svo stefnuna beint frá öllu sem getur kallast frjáls fjölmiðlun með þessum ósköpum.

Fagmaður látinn fara, og hrunkóngurinn ráðinn í staðinn. Ja, svei.

Og verði þetta úr mun Morgunblaðið ekki koma inn á mitt heimili framar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?