Einhverjir menn í útlöndum hafa fengið þá "snjöllu" hugmynd að efna til nýs skákeinvígis milli Garrí Kasparovs og Anatolí Karpovs.
Af því nú eru liðin 25 ár síðan þeir "félagar" settust fyrst að tafli árið 1984.
Fyrsta einvígi þeirra varð frægt að endemum, eftir að það var stöðvað þegar tefldar höfðu verið 48 skákir.
Karpov var á tímabili 5-0 yfir en Kasparov sneri við blaðinu og þegar einvígið var stöðvað hafði hann unnið tvær skákir í röð, og staðan var 5-3.
Næstu árin tefldu þeir hvert einvígið á fætur öðru, alls 144 skákir.
Þá var ég enn töluverður skákáhugamaður og þessi leiðindi ætluðu mann alveg lifandi að drepa. Tilhugsunin um Kasparov og Karpov að tafli, sem hafði verið svo spennandi, varð að óbærilegri martröð.
Undarlegt að einhver hafi áhuga á að ræsa að nýju minningar um þetta. Sérstaklega í ljósi þess að Karpov er nú ekki einu sinni inn á topp 100 af stigahæstu skákmönnum heims, og Kasparov hefur ekki teflt í mörg ár, heldur einbeitt sér að baráttu gegn Vladimir Pútin og hyski hans í rússneskum stjórnmálum.
Sú barátta hans er virðingarverð, en sýnist því miður ekki skila miklum árangri.
Ætli sú staðreynd að Kasparov láti hafa sig út í þá vitleysu sem einvígið við Karpov er, sé ekki fyrst og fremst til vitnis um að hann vanti klínk í kassann?
Varla ímyndar hann sér að það verði gaman að þessu?
Blogg
MARTRÖÐ ENDURVAKIN
14:40 › 21. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
