ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

"MAMMA MÍN ER FOKKINGS PRÓFESSOR!"

23:13 › 21. september 2009


Í Laugardalslauginni voru tveir strákar að metast.

Þeir voru á að giska 14 ára og þekktust greinilega ekki. Metingurinn var góðlátlegur en samt var undiralda í máli þeirra.

Ég lagði lítt eyrun við, fyrr en ég heyrði að annar strákurinn hugðist fella hinn með hælkrók:

"Mamma mín er prófessor við Háskóla Íslands!"

En þá svaraði hinn með sniðglímu á lofti:

"Mamma mín er líka fokkings prófessor við Háskóla Íslands!"

Niðurstaðan var vitaskuld jafntefli.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?