Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, hefur birt nýjustu skýrslu sína um Ísland. Tvennt vekur meiri athygli en annað í þeirri skýrslu.
Í fyrsta lagi virðist stofnunin komast að þeirri niðurstöðu að nóg svigrúm sé á Íslandi til verulegs niðurskurðar án þess að það komi að ráði niður á grunnstoðum velferðar í landinu.
Guð láti gott á vita. Ekki veit ég nákvæmlega hvað OECD hefur fyrir sér í þessu, en við skulum vona að það sé eitthvað.
Og það er náttúrlega ljóst að á síðustu árum hefur ríkiskerfið þanist gríðarlega út, þrátt fyrir málamynda andúð Sjálfstæðisflokksins á ríkisapparatinu. Það ætti því að vera unnt að skera eitthvað niður sem ekki er orðið alveg rótfast í samfélaginu.
Og í öðru kveður OECD mjög skýrt á um að okkur sé hollast að taka upp evru.
Það muni taka alltof langan tíma og kosta alltof mikið að reyna að endurreisa trú á íslensku krónuna.
Þetta er auðvitað laukrétt, og liggur reyndar alveg í augum uppi.
Þeir sem af ýmsum ástæðum (og sumum alveg prýðilegum) vilja ekki að Ísland gangi í ESB, þeir komast ekki framhjá þessari staðreynd.
Sama hvað þeir hamast með íslenska fánann á lofti.
Blogg
STAÐREYND SEM EKKI VERÐUR KOMIST FRAMHJÁ
13:50 › 2. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
