Í DV í dag er lítil klausa þar sem Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsir frati á Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra vegna yfirvofandi skattahækkana.
Aðspurður segir hann að Steingrímur verði líklega harður keppinautur "gamla Skattmanns" en það er heiti komið úr áramótaskaupi meðan Ólafur Ragnar Grímsson var fjármálaráðherra fyrir 20 árum og þótti skattaglaður.
Birgir og fleiri þingmenn og stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins munu veifa Skattmannsnafnbótinni óspart næstu mánuði, þegar skattahækkanir ríkisstjórnarinnar líta dagsins ljós.
Þessir hræsnarar!
Skattahækkanir gleðja mig ekki, það skal ég fúslega viðurkenna.
En ég skal þó með mestu ánægju taka þær á mig ef það getur orðið til þess að grunnstoðir samfélagsins skaðist sem minnst í þeim hörmungum sem nú ganga yfir.
Og ég lýsi algjörri fyrirlitningu minni á upphrópunum sjálfstæðismanna sem þykjast þess umkomnir að gagnrýna skattahækkanir og niðurskurð ríkisstjórnarinnar.
Sem hvorttveggja eru neyðarúrræði til þess að lina þjáningar samfélagsins eftir nær samfellda stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins í 18 ár.
Stjórnartíð sem skilur samfélagið eftir í rúst.
Samt þykjast dindlar frjálshyggjunnar þess umkomnir að rífast í og hæðast að þeim sem reyna að bjarga því sem bjargað verður úr brunarústum þeirra.
Samt lýsa tæplega 30 prósent þjóðarinnar yfir stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn í skoðanakönnunum.
Undarlegar geta sjálfsblekkingarnar verið.
Og hræsnin.
Blogg
HRÆSNI
09:09 › 2. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
