Á mínu heimili kemur öngvum dúr á auga, allir eru annars hugar og úrillir, eða þá svo þungt hugsi að þeir eru lengst úti á þekju.
Ekki út af kreppunni, ónei, hún veldur náttúrlega litlum vanda.
Heldur af því að ekki finnst svar við gátu einni sem fannst í gamalli bók eftir séra Svein Víking.
Bókin, eða heftið, kom út um 1970, og geymir vísnagátur, þótt raunar sé oft ekki mjög dýrt kveðið.
En nú er að sjá hvernig internetið stendur sig í gamaldags íslenskum vísnagátum.
Getur einhver sagt mér hvaða orð hér er spurt um (skýringar þyrftu helst að fylgja)?
Fæti bæði undir og á,
ekkjan forðum þetta heiti bar.
Bandi oft er brugðið um þá,
buxur mega ekki vera þar.
Blogg
HJÁLP, HJÁLP!
22:01 › 2. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
