Ítölsk lögregluyfirvöld eru umdeild. Þau hafa gegnum tíðina leyft mafíunni að vaða uppi, og spillingin á Ítalíu er skelfileg.
En þó geta yfirvöld þar í landi greinilega tekið til hendinni.
Diego Maradona skrapp á heilsuhæli á Norður-Ítalíu fyrir fáeinum dögum, til að jafna sig eftir ömurlegt gengi argentínska landsliðsins í knattspyrnu undir hans stjórn.
Þá birtust ítalskir lögreglumenn og hirtu eyrnalokkana hans upp í nærri 20 ára gamla skattaskuld.
Sjá frétt um það og mynd af eyrnalokkunum til dæmis hér.
Getiði séð fyrir ykkur að íslenskir skuldakóngar verði eltir uppi rétt fyrir árið 2029 og týndar af þeim eigurnar?
Blogg
MARADONA OG ÍTALSKA LÖGREGLAN
09:29 › 19. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
