ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EKKI VEIFA ÞINNI "HREINU SAMVISKU" FRAMAN Í MIG, GEIR!

12:37 › 19. september 2009


Ég var að horfa á viðtalið við Geir Haarde í norska sjónvarpinu (sjá hér) og er ansi hissa.

Af hverju leggur Geir svona mikla áherslu á að hann hafi hreina samvisku?

Og ekki aðeins hann.

Eiginlega allir sem raunverulega má segja að beri meiri eða minni sök á hruninu, þeir keppast allir um að lýsa því hvað þeir hafi góða og hreina samvisku.

Útrásarvíkingarnir, bankamennirnir, stjórnmálamennirnir, ráðherrarnir, embættismennirnir.

Hér varð mesta kerfishrun í nokkru vestrænu landi í háa herrans tíð. Þó halda allir þessir menn dauðahaldi í sína "hreinu samvisku".

Eins og mér sé ekki sama.

Mig langar ekkert sérstaklega til að hengja alla þessa menn upp í hæsta gálga. Ég veit að enginn þeirra ætlaði sér beinlínis að valda þessu, þó þeir hafi sumir hagað sér af allt að því glæpsamlegum glannaskap - og vafalaust megi finna raunverulega glæpi innan um þegar gjörðir þeirra verða rannsakaðar í þaula.

Og þó ég vilji að þeir ræði um sinn hlut að hruninu af heiðarleika og hreinskilni, þá þarf ég ekkert endilega á því að halda að þeir kasti sér endilöngum, rífi hár sitt og skegg og grenji innihaldslausar afsökunarbeiðnir.

En það minnsta sem ég fer fram á er að þeir veifi ekki sinni "hreinu samvisku" framan í mig.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?