Þegar ég var að byrja í blaðamennsku fyrir þrjátíu og hálfu ári síðan hafði Morgunblaðið algjöra sérstöðu á íslenskum fjölmiðlamarkaði.
Yfirburðir þess í útbreiðslu voru algjörir og áttu reyndar eftir að styrkjast enn. Næstu 10-15 árin týndu hin blöðin tölunni, hvert af öðru, en Mogginn virtist bara styrkjast og styrkjast.
Í hugum blaðamanna var það nánast eins og ígildi æviráðningar til hins opinbera að fara að vinna á Mogganum.
Ef menn stóðu sig sæmilega væru þeir öruggir fyrir lífstíð.
Enn meiri en yfirburðirnir í útbreiðslu voru samt yfirburðirnir að áhrifamætti.
Ég held að það sé alveg rétt sem oft var sagt að ritstjórar Moggans væru valdameiri en ráðherrar.
Eftir á að hyggja var áhrifamáttur Moggans fáránlegur.
Því þótt blaðið gæti í krafti yfirburða sinna í stærð og starfsmannafjölda gert margt sem önnur blöð gátu ekki, þá nýtti blaðið þessa yfirburði sína illa.
Við lesendur Moggans vöndumst því og fórum jafnvel að líta á það sem eðlilegan hlut að blaðið segði ekki allan sannleikann í ýmsum málum, af því það hentaði ritstjórunum ekki í valdaspili sínu.
Þetta gekk svo langt að Styrmir Gunnarsson ritstjóri hældist reglulega um í blaði sínu af því sem hann vissi en ætlaði ekki að segja!
Og svo meðvirkir voru lesendur Moggans orðnir með þessari leyndar- og valdafýsn ritstjórans að maður var jafnvel farinn að telja þetta merki um snilld ritstjórans.
Þegar einhver Prövduleiðarinn birtist þar sem bara var hægt að giska á hvað Styrmir vissi hugsanlega ef til vill kannski en ætlaði ekki að segja okkur, þá stóð maður sig að því að kinka kolli brosandi: "Góður!"
Blaðið hafði aldrei í sjálfu sér það markmið að upplýsa sannleikann. Það var alltaf að vinna í þágu einhvers málstaðar.
Sá málstaður gat verið góður eða slæmur eftir atvikum, en raunverulega góð blöð eiga ekki að vinna í þágu málstaðar.
Því er það mikið áfall fyrir Moggann, og jafnvel fyrir blaðamennsku á Íslandi, þegar Ólafur Stephensen er rekinn af Mogganum nú af því hann hefur ekki verið nógu hlýðinn þeim málstað sem sægreifarnir vilja að haldið sé á lofti.
Vegna þess að Ólafur var kominn töluvert á veg með að umbylta Mogganum, þannig að maður var svona um það bil hættur að hugsa fyrst þegar Mogginn birti fréttir af viðkvæmum málum í stjórnmálum eða viðskiptalífi: "Jæja, hvað býr nú undir þessu? Hverjum á þessi frétt að þjóna?"
Blogg
ÁFALL FYRIR MOGGANN
11:04 › 19. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
