ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Á ÞINGI AÐ RÍFAST UM NÆRBUXURNAR SÍNAR?

14:36 › 18. september 2009


Ég hef sagt það áður og segi það enn:

Allir þeir sem standa að Borgarahreyfingunni ættu að skammast sín.

Bæði þingmenn og aðrir.

Ekki aðeins hefur þessi hreyfing gert sig að fífli með hringlandahætti inni á Alþingi þegar þrír þingmenn reyndu að versla með atkvæði sín í ESB-málinu gegn því að látið yrði að vilja þeirra í Icesave-málinu.

Ekki aðeins hefur þessi hreyfing gert sig að fífli með óskiljanlegu rugli í "valdabaráttu" þingmannanna þriggja og þeirra sem standa utan þings.

Heldur hefur asnaskapurinn haft þau áhrif að tilraunir til að stofna ný stjórnmálasamtök til höfuðs "fjórflokknum" munu héðan í frá verða næstum ómögulegar.

Saga slíkra nýrra stjórnmálasamtaka var ekki beinlínis glæsileg, skal viðurkennt. Flest leystust fljótlega upp, sum heldur háðuglega.

En aldrei hafa ný samtök orðið jafn endaslepp og nú.

Né sundrast með jafn hraksmánarlegum hætti.

Borgarahreyfingin á þingi vill nú kallast Hreyfingin.

Hreyfing Þórs Saari, Margrétar og Birgittu.

Og þau ætla að standa fyrir siðvæðingu.

Það verður aldeilis gaman að fylgjast með þeim á þingi í vetur að rífast um nærbuxurnar sínar.

Og mikill sómi að íslenskur almenningur skuli ætla að halda þeim uppi við þá iðju.

Þetta væri grenjandi fyndið ef þetta væri ekki svona sorglegt um leið.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?