ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.0° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

MEGAS Á CHEERIOS-PAKKA

11:03 › 18. september 2009


Sonur minn ungur var að borða Cheeriosið sitt í morgun.

Hann er nýbúinn að uppgötva þá skemmtun að lesa á morgunkornspakka og las af ákafa meðan hann mokaði ofan í sig matnum.

"Þarna er Megas," sagði hann svo allt í einu upp úr eins manns hljóði.

Ég tók auðvitað ekkert mark á honum. Megas á Cheerios-pakka, ekki nema það þó.

En drengurinn lét sig ekki og skipaði mér að skoða bara sjálfur.

Og viti menn, þarna var mynd af Megasi. Og tilvitnun í hið ódauðlega kvæði: "Ef þú smælar framan í heiminn, þá smælar heimurinn framan í þig."

Megas var þarna ásamt ýmsum fleiri andans mönnum sem höfðu látið sitthvað spekingslegt út úr sér: Shakespeare, George Eliot, Marie Curie.

Mér fannst þetta sérlega ánægjulegur áfangi á framabraut Megasar, að vera kominn á Cheerios-pakka.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?