Þegar vefsíður sem hýsa bloggsíður vitna í þær á fréttasíðum sínum, og aðrar vefsíður fara síðan að vitna í þær fréttasíður, þá getur ýmislegt undarlegt gerst.
Áðan kíkti ég á Eyjuna.is.
Ein af fyrirsögnunum þar æpti á móti mér:
"ESB vill eignast íslenskar auðlindir."
Skambinn sjálfur! hugsaði ég. Hefur nú komist upp um samsæri Evrópusambandsins? Var Dan Brown á ferð í Brussel og las í teikn þau og tákn sem hulin eru?
Eða missti embættismaður á fylleríi út úr sér sannleikann í málinu, að þeir biðu í Brussel slefandi af fýsn eftir að ræna Gullfossi og flytja hann út í gámum?
Ég flýtti mér að smella á þessa frétt.
Skjálfandi beið ég, vonsvikinn og smeykur.
Ég sem hafði verið tiltölulega jákvæður í garð ESB. En nú skyldi ég éta allt oní mig aftur, fyrst komið væri í ljós að sambandið ætlaði að sölsa undir sig auðlindirnar.
En hvaðan var svo þessi "frétt" komin?
Rannsóknarblaðamennska frá Brussel? Hafði Google Earth lesið óvart oná skjöl samsærismanna þegar þeir skutust milli húsa?
Ónei.
Það var Sturla Böðvarsson sem hélt þessu fram á bloggsíðunni sinni.
Sturla Böðvarsson?!!
Blogg
ESB VILL EIGNAST ÍSLENSKAR AUÐLINDIR. JAHÁ?
11:50 › 18. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
