ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

TIL MARS - AÐRA LEIÐINA!

14:23 › 17. september 2009


http://mail.google.com/mail/?ui=2&ik=2083d0f8a0&view=att&th=123c84069a0540bf&attid=0.1&disp=inline&realattid=f_fzpk03y20&zwSKAKKI TURNINN er kominn út, með systur sína "Söguna alla" á bakinu.

Þetta eru altso tímaritin mín sem hafa verið sameinuð í eitt meðan kreppan bítur sem fastast.

Bæði standa sannarlega fyrir sínu að þessu sinni.

Í "Sögunni allri" er mjög athyglisverð grein um samúræja í Japan, sögu þessarar undarlegu hermannastéttar.

Ennfremur löng grein um orrustuna í Tevtóborgarskógi í Þýskalandi árið 14 eftir Krist, þar sem hinir frumstæðu en ofsafengnu Germanir unnu algjöran sigur á Rómaveldi.

Og svo eru í blaðinu skemmtilegar greinar um jafn ólíkt fólk og Coco Chanel, Humphrey Bogart og Albert Einstein.

Svona lítur forsíða "Sögunnar allrar" út að þessu sinni, en hérna að neðan er fjallað um SKAKKA TURNINN.



Aðalgreinin í SKAKKA TURNINUM er ítarleg úttekt á plánetunni Mars, landkostum þar og sérkennum. Næsta víst er að þangað fara menn fyrr eða síðar og hefjast jafnvel handa um að breyta hrjóstrugu yfirborði Mars í lífvænlegt umhverfi fyrir okkur mennina, með súrefnisríku andrúmslofti, höfum og vötnum.

En sökum þess hve geimferðir til Mars eru dýrar, þá gæti farið svo að geimfarar verði sendir þangað með miða bara þangað, en ekki til baka. Svo menn sleppi við kostnaðinn við að flytja þá heim aftur.

Þeir fari til Mars, vitandi að þeir muni bera þar beininn.

Þetta er nánast eins og sjálfsmorðsferðir.

Má bjóða ykkur far til Mars, aðra leiðina?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?