ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HVAR ER AGS?

13:59 › 16. september 2009


Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sagði í viðtali við danska sjónvarpið í gær að hann væri nokkuð viss um að botni efnahagslægðarinnar væri nokkurn veginn náð á Íslandi.

Þetta var sem sagt nokkuð jákvætt ...

En af hverju var hann í viðtali í danska sjónvarpinu? Af hverju var hann ekki í viðtali við íslenska fjölmiðla?

Er það framtaksleysi íslenskra fjölmiðla að kenna, eða eru talsmenn sjóðsins tregir til að tala við okkur?

Egill hefur verið að skammast yfir því að Dominique Strauss-Kahn yfirmaður sjóðsins skuli ekki koma hingað til lands og ræða við þá íslensku þjóð sem á svo mikið undir sjóðnum hans núna. Sjá hér.

Mér finnst þessar skammir eiga fullan rétt á sér.

Það er margt sem við þurfum að ræða við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Ekki einungis af hverju hann afgreiðir ekki okkar mál, nú þegar við höfum eftir ógnarþref afgreitt Icesave-samninginn alræmda.

Heldur líka og ekki síður þurfum við að ræða niðurskurðinn sem AGS hefur skipað fyrir um.

Sá niðurskurður sem sjóðurinn hefur fyrirskipað til að ná niður ríkisútgjöldum er auðvitað nauðsynlegur. En þarf hann að vera svo mikill og snöggur sem raun virðist eiga að bera vitni?

Er það ekki, eins og margir hafa bent á, tóm klikkun að ætla sér að ná hallalausum fjárlögum á þremur árum eða hvað það var?

Jafnvel burtséð frá því hvað Íslendingar munu þjást undan svo ofboðslegum niðurskurði sem slík áætlun hefur í för með sér, er þá nokkur þörf á honum?

Í því sambandi bendi ég á merkilega kjallaragrein Jóhanns Haukssonar í DV í dag, þar sem hann rekur kenningar hagfræðiprófessorsins James K. Galbraith (sonar gamla John Kenneth Galbraith) um að opinberar skuldir séu ekki það versta sem hugsast geti.

Eins og Jóhann orðar það er Galbraith yngri ásamt Joseph Stiglitz og fáeinum öðrum sem reka flótta frjálshyggjunnar.

Við eigum fullan rétt á því að fá að vita hverju forsvarsmenn Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins svara þeim félögum.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?