ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

TIL HVERS ER EINAR KARL?

18:37 › 15. september 2009


Ef nógu margir hrópa í kór, þá hlýtur það að enda með því að Jóhanna heyrir:

Að það gengur ekki lengur hvernig hún sniðgengur erlenda fréttamenn.

Hún getur unnið landi og þjóð mikið gagn með því að tala við þá hreinskilnislega.

Jóhanna hefur sinn sjarma, og hún ber með sér að hún er ærleg manneskja.

Útlenskir fréttamenn munu skynja það.

Egill lýsir því vel hér hversu fráleitur feluleikur hennar er orðinn.

Og skaðlegur fyrir okkur öll.

Hún verður að snúa við blaðinu.

Til hvers eru spunameistararnir sem hún sankar að sér ef þeir geta ekki komið henni í skilning um það?

Til hvers erum við alltaf að borga Einari Karl kaup?




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?