ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

íSLAND AFTAR Í RÖÐINNI EN KÓMÓRÓ-EYJAR!

13:30 › 15. september 2009


Ísland er ekki á dagskrá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í þessum mánuði. Sjóðurinn mun hins afgreiða erindi Rúmeníu, Mongólíu og Kómóró-eyja á næstunni.

Ef einhver skyldi ekki vita það, þá eru Kómóró-eyjar svolítill eyjaklasi norður af sundinu milli Madagaskar og meginlands Afríku.

Alls eru eyjar 5, auk útskerja, og flatarmál er samtals 2.200 ferkílómetrar. Flatarmál Íslands er til samanburðar 103.000 ferkílómetrar.

Þrátt fyrir smæð eyríkisins eru íbúar reyndar næstum þrisvar sinnum fleiri en Íslendingar, 984.500 talsins síðast þegar Wikipedia frétti.

Stjórnmálasaga eyjanna undanfarið hefur einkennst af einskæru rugli.

Erindi þessa góða ríkis verður tekið fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðnum áður en sjóðurinn lætur svo lítið að huga að okkur málum.

Nú er það ekki svo að ég telji endilega sáluhjálp okkar velta á því hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn makkar með okkar mál fyrr eða síðar.

En ég vona að það sé ekki til marks um þjóðernishroka þegar ég segi að heldur þykir mér að aumt að sitja aftar á bænabekknum en Kómóringar.

Væntanlega af því sjóðurinn er í makki með Hollendingum og Bretum um hvort fyrirvararnir við Icesave-samninginn þóknast þeim

En verður ríkisstjórn okkar að láta þennan hrokagikkshátt líðast?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?