ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HITLER OG FJÖLSKYLDA!

08:52 › 15. september 2009


RÚV hefur birt þessa frétt hér um tvo Belga sem virðast hafa farið um heiminn í leit að ættingjum Adolfs Hitlers. Ef ég skil fréttina rétt hafa þeir meðal annars þvingað fram í dagsljósið þrjá frændur Adolfs sem í Bandaríkjunum búa, og ef rétt er, þá þykir mér það illa og grimmdarlega gert af Belgunum tveim.

Því þessir bandarísku frændur höfðu lagt allt kapp á að leyna tengslum sínum við Hitler, svo mjög hafa þeir skammast sín fyrir að vera tengdir honum.

Sú saga hefur meira að segja löngum gengið fjöllunum hærra að þeir (og einn bróðir þeirra sem nú er látinn) hafi sammælst um að eignast ekki börn, til þess að "ætt Adolfs Hitlers" myndi deyja út með þeim.

Einn þeirra segist reyndar ekkert kannast við slíkt samkomulag. En svo mikið er víst að enginn þessara fjögurra frænda Hitlers kvæntist eða eignaðist börn.

Núna virðast Belgarnir tveir í spæjaraleik sínum hafa vaðið á skítugum skónum yfir þessa amerísku frændur Hitlers og setið um að hirða eftir þá munnþurrkur á skyndibitastöðum.

Til að greina DNA þeirra og knýja þá fram í dagsljósið.

Ég sé nú ekki tilganginn með því.

En um ætt Hitlers hef ég skrifað margoft, síðast í tímaritið Sagan öll.

Svona var þetta nokkurn veginn:

1837 fæddist piltur sem skírður var Alois í Austurríki.

Móðir hans hét Maria Anna Schicklgruber, 42 ára kona af bændaættum.

Faðirinn var ókunnur en seinna gekk Maria Anna að eiga Johann Georg Hiedler sem gekk Alois í föðurstað. Alois bar þó ættarnafnið Schicklgruber fram til fertugs.

Þá gekk hann fyrir embættismann og óskaði þess að taka upp ættarnafn stjúpföður síns og hafði með sér votta sem báru að Johann Georg Hiedler hefði í raun verið faðir Alois.

Óvíst er hvort það var rétt. Faðirinn gæti alveg eins hafa verið Johann Nepomuk Hiedler, bróðir Johann Georgs. Hann skrifaði reyndar nafnið sitt oftast Hüttler, ekki Hiedler.

Eða jafnvel Leopold nokkur Frankenberger sem var af Gyðingaættum. Maria Anna Schicklgruber vann sem þjónustustúlka á heimili hans um tíma. Þá var hann 19 ára en hún um fertugt.

Sú kenning að Gyðingastrákurinn hafi barnað þjónustustúlkuna komst á kreik þegar Gyðingahatarinn Adolf (sonarsonur Mariu Önnu) komst seinna til valda í Þýskalandi en með öllu er óljóst hvort eitthvað sé hæft í henni. Líklega er hún vafasöm.

Altént: Þegar Alois Schicklgruber gekk á fund embættismanns og vildi taka upp ættarnafn Johanns Georgs Hiedlers skrifaði embættismaðurinn hið nýja nafn hans svona: "Alois Hitler".

Ekki er vitað hvort um ritvillu embættismannsins var að ræða eða hvort Alois vildi láta skrifa nafnið svona.
Stafsetning, jafnvel á nöfnum, var ekki jafn samræmd í þá daga og síðar varð, samanber mismunandi stafsetningu bræðranna Johanns Georgs Hiedlers og Johanns Nepomuks Hüttlers á sameiginlegu nafni þeirra.

Nafnið er sennilega tékkneskt að uppruna: Hidlar eða Hidlarcek.

En að minnsta kosti bar Alois nafnið Hitler upp frá því.

Alois Hitler kvæntist um síðir konu að nafni Franziska sem hafði borið honum soninn Alois yngra.

Nokkru seinna dó Franziska og Alois gekk þá að eiga Klöru nokkra Pölzl, sem reyndar var dótturdóttir Johanns Georgs Hüttlers og því náskyld Alois.

Þau eignuðust soninn Adolf.

Illt var milli hálfbræðranna Alois yngra og Adolfs, en sjö ár voru milli þeirra. Alois yngri fór snemma að heiman og flakkaði víða á sínum yngri árum. Hann fór til Bretlands og gekk 1910 að eiga breska stúlku. Þau eignuðust soninn William Patrick Hitler.

Seinna yfirgaf Alois bresku stúlkuna, fór til Þýskalands og rak knæpu á stríðsárunum seinni. Þeir Adolf hittust sjaldan eða aldrei.

Alois yngri kvæntist aftur og eignaðist soninn Heinz Hitler sem dó í haldi Sovétmanna á austurvígstöðvunum í heimsstyrjöldinni sem Adolf frændi hans hleypti af stokkunum.

Eftir stríðið dró Alois yngri fram lífið á því að leyfa ferðamönnum að taka myndir af sér og árita myndir af Adolf.

Af William Patrick Hitler er það að segja að þegar hann var orðinn fullorðinn á fjórða áratugnum fór hann til Þýskalands þar sem Adolf frændi var kominn til valda.

Hann reyndi að komast inn undir hjá honum, en Adolf vildi ekkert af honum vita, svo að lokum fór William Patrick til Bandaríkjanna. Þar gekk hann í ameríska herinn og þjónaði í sjúkrasveitum flotans í stríðinu gegn Adolf og félögum hans.

Eftir stríðið breytti William Patrick eftirnafni sínu í Stuart-Houston. Hann kvæntist og eignaðist fjóra syni.

Þótt William Patrick héldi því fram að hann hefði nú megnustu skömm á Adolf frænda sínum skírði hann elsta son sinn samt Alexander Adolf.

William Patrick Stuart-Houston (áður Hitler) dó 1987.

Einn sona hans er látinn, hinir þrír lifa. Blaðamaður leitaði þá uppi árið 2002 en þeir grátbáðu um að ekki yrði upplýst um rétt nöfn þeirra.

Það hafa belgísku DNA-spæjararnir samt gert núna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?