ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SPILLTA LÖGGAN

09:31 › 12. september 2009


Frétt Moggans um að framsóknarmaðurinn í bankaráði Seðlabankans hafi endilega viljað hjálpa fyrirtækjum að komast hjá því að koma gjaldeyri til landsins er undarlega mikið áfall.

Er engin leið að Framsóknarflokkurinn snúi af spillingu síns vegar?

Er engin leið að vinnubrögð hér á Íslandi skáni nokkurn tíma?

Við erum af veikum mætti að reyna koma einhverri skikk á mál, og þá gerist þetta.

Þetta hljómar eins og ef löggan er að rannsaka glæpamál en ein löggan lætur bófana alltaf vita hvað sé að gerast. Já, hringir jafnvel og stingur að fyrra bragði upp á sniðugum glæpum.

Jafnvel þó engum kunni að hafa komið til hugar að setja sérstök lög gegn athæfi Magnúsar Árna, þá er það bara svona sem þetta hljómar.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?