ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KONA MEÐ KJÖLTURAKKA

20:34 › 12. september 2009


Fyrr í dag mætti ég konu með kjölturakka á Amtmannsstígnum.

Þetta var lítill og svartur mjög loðinn hundur. Mér finnst kjölturakkar yfirleitt ekki mjög fallegir, en þessi var ljómandi snotur.
Svo ég nam staðar og spurði konuna hvaða tegund hundurinn væri.

Hún sagði mér að þetta væri Pommeraníuhundur.

Svo bætti hún við að hundurinn héti Snati.

Það fannst mér vel af sér vikið, nú þegar ég hef á tilfinningunni að allir kjölturakkar heitir Prins eða Daisy eða Lady eða Lúkas.

Nei, Snati hét hann þessi.

Gott nafn.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?