Hallur Magnússon bloggari og framsóknarmaður hvetur hér Magnús Árna Skúlason flokksbróður sinn til að segja af sér í bankaráði Seðlabankans vegna þeirra "mistaka" sem hann gerði með gjaldeyrisbraski sínu um leið og hann sat í bankaráðinu.
"Mistök" virðist voðalega léttvægt orð yfir það fullkomna siðleysi sem Magnús Árni hefur gert sig sekan um.
En Hallur biður Framsóknarflokknum griða í málinu. Magnús Árni sé nefnilega nýgenginn í Framsóknarflokkinn.
Úr Sjálfstæðisflokknum.
Mikið er ég hissa á því að Magnús Árni skuli hafa komið þaðan.
Eða hitt þó heldur.
Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að það er í sjálfu sér mjög mikilvægt að halda Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum frá öllum valdataumum sem lengst.
Og því er þjóðstjórn til dæmis vond hugmynd, eins eðlileg og hún ætti þó að vera.
Einfaldlega vegna þess að sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum er ekki treystandi.
Það mun taka þá mörg ár og kannski enn lengri tíma að þvo af sér spillingarorðið.
Eða hver hefði eiginlega haft hugmyndaflug til að láta sér detta í hug að bankaráðsmaður í Seðlabankanum stæði í gjaldeyrisbraski?!!
Það er ekki upp á þetta fólk logið.
Ég bið alla heiðarlega sjálfstæðismenn og framsóknarmenn velvirðingar, en við svona fréttir hljóta þeir að skilja af hverju fólk eins og ég hefur svona mikla fordóma gegn þeim þessi misserin.
Og þeir verða að sætta sig við að fá ekki að komast til valda fyrr en búið er að ormahreinsa flokkana.
Blogg
ORMAHREINSIÐ SJÁLFSTÆÐISFLOKK OG FRAMSÓKNARFLOKK!
10:27 › 12. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
