Baldur McQueen hefur á sinni ágætu bloggsíðu vakið athygli á sérstakri vefsíðu sem breska forsætisráðuneytið heldur úti.
Þar getur fólk lagt fram "bænaskrár" til forsætisráðherrans um að hann beiti sér fyrir hinu og þessu.
Sjá hér.
Þarna er greinilega um að ræða stór mál og smá.
Meðal nýjustu "bænaskránna" er krafa um að stranglega verði bannað að nota beagle-hunda í hvers konar tilraunir.
Og önnur um að allir heimiliskettir skuli geltir nema einhverjar alveg sérstakar læknisfræðilegar ástæður komi í veg fyrir það.
Greinilegt er að forsætisráðherrann telur sér engan veginn skylt að fara eftir þessum "bænaskrám" því Gordon Brown hefur að minnsta kosti ekki uppfyllt þá "bænaskrá" sem flestir hafa skrifað undir.
Og snýst um að hann segi af sér.
En hins vegar hefur nú verið beðist afsökunar á meðferðinni sem Alan Turing sætti af hálfu breskra stjórnvalda á árunum eftir heimsstyrjöldina síðari.
Af því hann var samkynhneigður.
Wall Street Journal skrifar hér bæði um Turing og herferðina honum til stuðnings á netinu.
Þarf að hafa mörg orð um hve kjörið væri að íslenska forsætisráðuneytið kæmi sér upp sams konar vefsíðu?
Nema í guðs bænum ekki tala um "bænaskrár" þó það sé hefðbundin þýðing á enska orðinu "petition".
"Bænaskrá" hljómar eins og maður skríði á hnjánum fyrir kónginn.
En í raun á fólk að ganga stolt á fund þeirra sem um tíma hefur verið treyst fyrir völdunum og setja fram óskir sínar.
Ekkert bænakvak, takk!
Blogg
"BÆNASKRÁR" TIL JÓHÖNNU?
13:51 › 12. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
