Ég verð að snúast til varnar Jóni Ásgeiri Jóhannessyni.
Hann segir í viðtali við Viðskiptablaðið að hann sé enn prýðilega stæður.
Fólk skuli því ekki hafa áhyggjur af sér.
Og fjöldi manns hefur á netinu og víðar verið að hneykslast á þessu og hæðast að þessu eins og hann hafi sagt þetta í fúlustu alvöru.
Sjá til dæmis hér.
En krakkar mínir komiði sæl: Eru Íslendingar allt í einu hættir að þekkja fyrirbærið kaldhæðni?
Auðvitað býst Jón Ásgeir ekki í alvöru við að menn hafi miklar áhyggjur af hans persónulega fjárhag. Þótt hann sé umdeildur er hann enginn asni.
Þessi orð eru náttúrlega alveg borðliggjandi dæmi um kaldhæðni.
Meira að segja frekar vel heppnaða kaldhæðni.
Sem sérstakur aðdáandi kaldhæðni bæði í ræðu og riti, þá fannst ég verða að halda þessu til haga!
Blogg
TIL VARNAR KALDHÆÐNI
12:39 › 11. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
