Það er ástæða til að fagna því að Svartbók kommúnismans sé komin út á íslensku, eitthvað um áratug síðan hún kom fyrst út á frönsku. Í þessa bók hefur verið safnað saman sögum um framkvæmd kommúnismans gegnum tíðina, og þar sem sú framkvæmd hefur alltaf og ævinlega endað með skelfingu, þá er þetta óskemmtilegur lestur.
Jafnframt er rakin hugmyndafræðileg þróun kommúnista. Bókin er stór og mikil og fáir munu geð í sér til að setjast niður með hana og lesa frá orði til orðs; að minnsta kosti þarf maður að standa upp og hrista sig öðruhvoru, svo ömurlegt er efnið.
En þetta er þörf lexía um hvað gerist þegar menn leyfa tiltekinni hugmyndafræði að ná alræðisvaldi í samfélaginu. Ég er ekki alveg viss um að það sé endilega ástæða til að kenna hinni upprunalegu hagfræðikenningu Karls Marx um þessi ósköp vel - til dæmis fæ ég ómögulega séð hvað sú kenning hafði með að gera landbúnaðarfasisma Rauðu khmeranna í Kambódíu.
Samfélagi þeirra svipar einna helst til hinna fornu Inka á sterum og spítti.
En það er þó engin þörf á að byrja þref um muninn á til dæmis ofbeldis- og alræðisstjórnum fasista annars vegar og kommúnista hins vegar. Þetta er einfaldlega bók um manninn upp á sitt versta, og því miður er okkur nauðsynlegt að þekkja þá mynd okkar.
Blogg
KOLSVARTUR KOMMÚNISMINN
13:42 › 11. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
