Átta ár frá 11. september 2001?
Jahá.
Það hlýtur að hafa verið ansi gaman síðan þá; nógu hratt hefur tíminn að minnsta kosti flogið.
Nú skilst mér að sá mikli og djúpi hugsuður Charlie Sheen hafi viðrað þá skoðun sína að ríkisstjórn George Bush hafi staðið að baki árásunum 11. september, í samstarfi við Osama bin Laden.
Sjá hér.
Ég veit ósköp vel að maður á ekki að trúa samsæriskenningunum um 11. september. Ég veit að það eru eingöngu kverúlantar, rugludallar og idjótar sem leggja trúnað á það rugl allt saman.
Ég veit fullvel að maður dæmir sig eiginlega úr leik í almennilegu samfélagi ef maður svo mikið sem hvíslar að einhverjum að eitthvað kunni nú að vera til í þessu!
Þrátt fyrir þá undarlegu staðreynd að reyndar hafi fjölskyldur George Bush og Osama bin Laden verið tengdar á ýmsan hátt ...
Og þrátt fyrir svo ótal margt annað.
Já, ég veit að maður á að hlæja að samsæriskenningunum!
Þrátt fyrir þennan ó-svo-sannfærandi danska sérfræðing sem kemst að þeirri niðurstöðu hér að leifar af sprengiefni hafi verið að finna í rústunum af skýjakljúfnum World Trade Center 7.
Það sem kom fyrir hann er eitt það dularfyllsta sem gerðist 11. september.
Þetta var 47 hæða hús sem stóð að baki tvíburaturnanna stóru.
Mörgum hefur þótt dularfyllt að stóru turnarnir tveir skyldu hrynja svo fljótt og svo snyrtilega sem raun bar vitni og hafa talið að þeir hljóti að hafa verið sprengdir í loft upp.
Aðrir veifa rakhníf Ockhams (sjá grein um "Lögmál nútímans" í nýjasta SKAKKA TURNINUM) og segja að ef risastór flugvél full af eldsneyti flýgur á hús og það hrynur síðan, þá sé lang eðlilegast að reikna með að ástæðan fyrir hruni hússins sé að flugvél hafi flogið á það full af eldsneyti.
Það þurfi ekki aðra skýringu til.
En engin flugvél flaug á WTC 7. Brak úr stóru turnunum dreifðist yfir húsið og það kviknuðu eldar, en það var þó langt frá því að húsið skíðlogaði.
Svo hrundi það bara allt í einu.
Eða svo að segja.
Mjög, mjög skrýtið.
En ég endurtek ... já, ég veit að maður á ekki einu sinni að eyða orðum á samsæriskenningarnar!
Ég skal aldrei gera það aftur, ég lofa, ég lofa, ég lofa!
(Get samt ekki stillt mig um að benda á bókina "Hvað gerðist 11. september?")
Blogg
HVER VAR AÐ VERKI 11. SEPTEMBER 2001?
11:05 › 11. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
