ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

"GUDJOHNSEN" FELLUR ENN Í KRAMIÐ!

13:26 › 11. september 2009


Um daginn var ég eitthvað að hálfhæðast að því þegar Eiður Smári Guðjohnsen fór frá Barcelona til Monaco.

Fannst það ekki beint skref upp á við, ef ég man rétt.

Og nefndi að litlu strákarnir sem sóttust eftir því að kaupa Chelsea- og Barcelona-treyjur með nafninu "GUDJOHNSEN" aftan á myndu líklega fitja upp á trýnið og segja pass ef þeim yrði boðið upp á Monaco-treyjur með nafninu hans.

En þetta er víst argasta bull.

Í búðinni Jói útherji er mér sagt að hafi ekki linnt símhringingum frá drengjum sem vildu rauða Monaco-búninginn, þennan hér.

Og stór sending víst á leiðinni.

Svo Eiður Smári er greinilega lítið að tapa vinsældum.

Okkar maður!





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?