Egill Helgason nágranni minn og vinur hefur látið svo um mælt að "hrunverjar séu að snúast til varnar" með því að reyna að beina athyglinni frá ávirðingum sínum að svívirðilegum og ranglátum árásum sem þeir sæti frá nafnlausum bloggurum.
Sjá hér.
Orðið "hrunverjar" þýðir hér þá sem segja má að eigi sök á efnahagshruninu, og getur væntanlega átt við bæði kaupsýslumenn og bankamenn, stjórnmálamenn og embættismenn, og þess vegna fjölmiðlamenn líka, hugsa ég.
Bakkavararbræður hafa til dæmis verið iðnir við kolann að skammast út í bloggið.
Nú bætist Jón Ásgeir Jóhannesson í hópinn, sjá hér.
Og telur sig hafa sætt óbilgjörnum árásum, hinna "huglausu" sem fela sig bak við nafnleysið.
Þetta er bara steypa í Jóni Ásgeiri.
Næstum allt bloggið er undir nafni. Það er að segja bloggararnir sjálfir.
Athugasemdakerfi eru hins vegar oftar en ekki nafnlaus, og þar getur vissulega ótrúlegur óhroði skotið upp kollinum.
Lengst af hefur það ekki verið neinum manni hollt að lesa þann sora sem hellist yfir mann við að lesa athugasemdakerfi sumra vinsælla bloggsíðna, t.d. Egils.
(Þó hann hafi margoft lýst því að hann grisji vandlega út þá orðljótustu, og sé raunar nýbúinn að hóta að loka athugasemdakerfi sínu alveg, sjá hér.)
En það er eiginlega ómissandi þáttur í sálrænum bata hvers manns eftir hrun-sjokkið að hætta að lesa athugasemdakerfin!
Út af því ofsafengna orðbragði sem þar hefur tíðkast.
Það er synd, því vissulega eru innan um ágætar ábendingar, og það jafnvel í nokkuð stórum meirihluta, en munnsöfnuður minnihlutans skyggir rækilega á.
Þannig séð skil ég ósköp vel að mönnum eins og Jóni Ásgeiri blöskri svívirðingarnar sem þar má lesa um þá sjálfa.
Þótt bæði hann og margir aðrir "hrunverjar" eigi vafalítið sinn þátt í því hvernig fór, þá á enginn skilið sumt af því sem hinir nafnlausu sjóða saman.
En talið um alla "huglausu bloggarana" er samt á misskilningi byggt og í versta falli tilraun til að kasta ryki í augu fólks.
Setja allt bloggið undir sama hatt.
Nafnkunna bloggara sem standa fyrir sínu máli sjálfir og skrifa meira eða minna úthugsaða pistla, annars vegar, og hins vegar hina nafnlausu sem fá oft mjög tilfinningaþrungna útrás í stuttum athugasemdum sínum - en enginn tekur í rauninni mark á.
Menn eins og Jón Ásgeir geta ekki vikið sér undan árásum hinna fyrrnefndu (sem oft eru vel ígrundaðar) með því að beina sífellt athyglinni að hinum síðarnefndu "hugleysingjum".
Blogg
STEYPA Í JÓNI ÁSGEIRI
11:23 › 10. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
