ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HÆTTIÐ ÞESSUM MÁLAREKSTRI!

13:51 › 10. september 2009


Björgólfarnir og Karl Wernersson virðast ætla að halda fast við málarekstur sinn gegn Stöð 2 sem hafði fullyrt að þeir hefðu tekið stórfé út úr Straumi og fært í skattaskjól á einhverjum útskerjum.

Þeir heimta milljónir í skaðabætur frá bæði Óskari Hrafni fréttastjóra og blaðamanni hans, og Karl er meira að segja svo óforskammaður að heimta skaðabætur frá Telmu Tómasson sem bara las innganginn að fréttinni í fréttatíma Stöðvar 2.

Óskar Hrafn hefur komið með skemmtilegan krók á móti bragði með því að krefjast málskostnaðartryggingar, að minnsta kosti frá Björgólfi Guðmundssyni, enda sé hann gjaldþrota.

En þeir Björgólfar og Karl ættu að draga málssóknina til baka hið bráðasta.

Segjum að þeir hafi rétt fyrir sér, og frétt Stöðvar 2 sé röng.

Ég veit akkúrat ekkert um það, en setjum svo.

Er þá ekki sjálfsagt að Stöð 2 axli ábyrgð á sinni röngu frétt með því að borga auðkýfingunum nokkrar milljónir?

Nei, það finnst mér ekki.

Þótt prinsipið "saklaus uns sekt er sönnuð" eigi ævinlega að vera meginstoð þess réttarríkis sem við viljum að samfélag okkar sé, þá verður líka að líta á hvert mál fyrir sig.

Og þá tíma sem við lifum á.

Það er mikilvægara við núverandi aðstæður að fjölmiðlar séu ekki lamaðir af ótta við að þurfa kannski að borga milljónir í skaðabætur heldur en að fáeinir auðkýfingar þurfi kannski að bera til baka eina og eina ranga frétt.

Það er ekki eins og orðspor þeirra sé svo svakalega fínt og fágað þessa dagana að þeir beri mikið tjón aukalega af einni rangri frétt.

Og eru þá allar hinar fréttirnar af þeim sem sagt réttar?

En mergurinn málsins er þessi: Það er miklu mikilvægara að fjölmiðlar séu óhræddir við að flytja fréttir af hruninu mikla en að óþarfa kusk falli ekki á hvítflibba nokkurra auðkýfinga.

Meira að segja þeir eiga að átta sig á því.

Og hætta svona málarekstri.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?