Í gær klukkan sjö flutti sjónvarpið frétt um að í tæpt ár hefðu japanskir kaupsýslumenn og fjárfestar beðið eftir svari frá íslenskum yfirvöldum um hvort þeir mættu leggja 126 milljarða króna í íslenskt atvinnulíf.
En enginn hafi virt þá viðlits.
Sjá frétt um þetta hér.
Þetta er svo geggjuð frétt að maður hristir eiginlega bara hausinn.
Hér er leikrit:
Dagur í fjármálaráðuneytinu. Nokkrir þreytulegir japanskir herramenn sitja bak við hurð.
Aðstoðardeildarskrifstofustjóri: Hei, hvaða menn eru þetta?
Yfirundirsviðsdeildarstjóri: Æ, já, það eru einhverjir Japanir, þeir eru búnir að bíða síðan einhvern tíma í fyrra. Þeir vildu koma hérna með einhverja rúmlega hundrað milljarða. Kaupa banka og eitthvað svona.
Aðstoðardeildarskrifstofustjóri: Nú? Og hvað?
Yfirundirsviðsdeildarstjóri: Æ, við ákváðum bara að setja þetta á ís. Örugglega eitthvað vesin. Og þurfum við nokkuð á þessum peningum að halda?
Aðstoðardeildarskrifstofustjóri: Nei, það er rétt, við þurfum ekkert á þessu að halda. Förum bara aftur að lita.6
Endir. Japanir fara.
Nú veit ég að starfsmenn fjármálaráðuneytisins hafa mörgu að sinna. En að tilboð um fjárfestingar upp á meira en 100 milljarða hafi "dottið milli skips og bryggju" í ráðuneytinu er samt aldeilis ótrúlegt að heyra.
Enn eitt merkið um fíflskuna sem virðist hafa heltekið okkur.
126 milljarðar - og við sinntum því ekki!
Og þótt hrósa megi RÚV fyrir viðleitni með því að gera þessa frétt, þá reyndist áhuginn ekki meiri en svo að fréttinni hefur ekki verið fylgt eftir.
Í tíufréttum sjónvarpsins í gærkvöldi var allt undirlagt af gríðarlega mikilvægum fréttum um einhverjar óskiljanlegar róstur á Álftanesi.
Og í morgun sinna blöðin ekki þessari frétt, né vefmiðlarnir.
Enginn hefur áhuga á þessu máli, að því er virðist.
Milljarðar frá Japan? Puhh!
Erum við alveg gengin af göflunum?
Blogg
ERUM VIÐ GENGIN AF GÖFLUNUM?
10:08 › 10. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
