ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÆGIFAGRAR HAMFARIR

12:14 › 10. september 2009


Ég hálfskammast mín í hvert sinn sem ég set eitthvað hér á Trésmiðjuna sem ekki lýtur að hruninu eða "ástandinu" yfirleitt.

Þá er eins og maður sé að hlaupast undan merkjum.

En ég skammast mín ekki neitt fyrir að benda fólki á nýja ljósmynd sem ég rakst á.

Hubble-sjónaukinn tók hana, en viðgerð á honum lauk fyrir skömmu og nú tekur hann betri myndir en nokkru sinni fyrr.

Á myndinni sjást dauðateygjur sólstjörnu. Hún var fimm sinnum stærri en sólin okkar. Kannski voru kringum hana reikistjörnur með blómlegu lífi eins og á jörðinni. En stjarnan sundraðist og leifar hennar hendast út í geiminn á ofsahraða.

Og allt líf horfið á andartaki.

En í okkar augum er þetta einna líkast fallegu fiðrildi.

Smellið hér og smellið síðan á myndina sjálfa. Þá stækkar hún. Njótið svo.

Jafnvel hrunið verður hálf ómerkilegt í samanburði við þessar ægifögru hamfarir!!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?