Meðan fellibylurinn Icesave gekk yfir verð ég að viðurkenna að ég hafði ekki sálarþrek til að fylgjast sem skyldi með öðrum fréttum.
Til dæmis hafa orkusölumál á Suðurnesjum farið meira og minna framhjá mér.
Og nú vakna ég upp við vondan draum. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn í borgarstjórn Reykjavíkur að selja útlendingum hlut í íslenskri orku.
Ég held að ég hafi sjaldan séð nokkurn stjórnmálamann jafn flóttalegan og með jafn slæma samvisku og Kjartan Magnússon í viðtali um málið í tíufréttum sjónvarpsins í gærkvöldi.
Sjá hérna, vona ég.
Ég tek undir hvert einasta orð Ögmundar hér.
Þetta má ekki gerast.
Blogg
ÞETTA MÁ EKKI GERAST
09:40 › 1. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
