Undarlegt að sjá Eið Smára Guðjohnsen lofa og prísa nýju treyjuna sína hjá Monaco svona mikið eins og hann gerir hér.
Rauði liturinn er eitthvað linkulegur.
Ég er líka eiginlega viss um að vinir mínir í Jóa útherja í Ármúlanum eiga ekki eftir að selja neina bílfarma af þessari treyju. Jafnvel þó það standi "Gudjohnsen" aftan á henni.
Frægir Íslendingar eins og Eiður Smári verða svona svolítið eins og brottfluttu börnin okkar.
Maður fylgist með þeim úr fjarlægð og vonar það besta fyrir þeirra hönd, þó maður þekki þetta fólk ekki neitt.
Og í þetta sinn held ég að þjóðarsálin hafi áhyggjur af því hvort þetta sé endilega það rétta fyrir strákinn!
- - - -
Viðbót síðar:
Það reyndist vera tóm vitleysa í mér að ungir menn íslenskir myndu ekki hafa mikinn áhuga á Monaco-treyjum með nafni Eiðs Smára. Í Jóa útherja er mér sagt að stöðugt hafi verið spurt um þær í allan dag og sending sé nú þegar á leiðinni!
Svo þetta var heldur betur máttlaust grín hjá mér.
Blogg
LJÓTA TREYJAN HANS EIÐS SMÁRA
11:04 › 1. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
