Tveir ungir menn hafa boðið sig fram til formanns í stjórnmálafélaginu Heimdalli. Það er félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.
Til skamms tíma var það vís vegur til metorða í samfélaginu að vera formaður Heimdallar.
Það var ein af hraðbrautunum í framagosakerfi Sjálfstæðisflokksins.
Mæta á fundi í Valhöll, klappa á réttum stöðum í ræðum Hannesar Hólmsteins og Davíðs, setjast í stjórn, skrifa greinar í blöðin til stuðnings gömlu hetjunum í flokknum, verða kosinn formaður ... ef maður fór þessa braut var framtíðin nokkuð trygg.
Vel launuð staða hjá hinu opinbera blasti við.
Því það var alveg sama þó litlu sjálfstæðismennirnir teldu á tyllidögum að einkaframtakið ætti að ráða og ríkið að draga saman seglin.
Þegar til kom flykktust þeir á ríkisjötuna þar sem flokksbræður þeirra gáfu á garðann.
Nú er svo mikil reisn yfir kosningabaráttu þessara ungu manna og svo mikið innihald í stefnumálum þeirra, að baráttan felst greinilega fyrst og fremst í því að henda hinum út af Facebook.
Sjá hérna.
Lágkúran, maður, lágkúran.
Við skulum vona að það sé enn langt, langt þangað til Sjálfstæðisflokkurinn komist aftur að ríkisjötunni til að gefa litlu guttunum sínum.
Blogg
INNILEGA LÁGKÚRULEG "KOSNINGABARÁTTA"
13:23 › 1. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
