Það er fín grein eftir Sólveigu Sigríði Jónasdóttur í Mogganum í dag, þar sem hún fjallar um hlutskipti þeirra sem sitja í skuldasúpu án þess að verða þó sakaðir um að hafa á nokkurn hátt lifað um efni fram.
Það er sök bankanna en ekki hennar sjálfrar hvernig komið er fyrir henni, segir hún, og gagnrýnir Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra fyrir að gefa í skyn að fólk hefði ekki átt að taka þessi lán.
Sólveig setur mál sitt fram skörulega og kurteislega þó hún sé augljóslega reið.
"Fólkið með lánið" kallar hún þann hóp sem er í vandræðum, en neitar að kalla sig "skuldara".
Þetta er tónn sem mun heyrast æ oftar og hærra á næstu vikum, er ég smeykur um. Í DV er líka rætt við tvo menn á svipuðum nótum, sjá hérna.
Blogg
FÓLKIÐ MEÐ LÁNIN
08:04 › 1. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
