ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.8° 6m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

60 MILLJARÐAR FUÐRA UPP, OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ?

11:53 › 1. september 2009


Ég var áðan að fletta DV og fór að renna yfir fína frétt Inga Vilhjálmssonar blaðamanns um málefni Eimskipafélagsins.

Gamli Landsbankinn þarf að afskrifa 60 milljarða vegna taprekstrar félagsins undanfarin ár.

Sem fyrst og fremst virðist tilkominn vegna lélegrar stjórnar.

Björgólfs Guðmundssonar og þó kannski fyrst og fremst hins undarlega Magnúsar Þorsteinssonar.

Jæja já, 60 milljarða? Humm og ha ... hvað er fleira í fréttum?

Allt í einu rann mér kalt vatn milli skinns og hörunds. Þarna sat ég og las í mestu rólegheitum frétt um 60 milljarða króna sem búið er að sturta niður af óhæfum stjórnendum.

Og ég festi varla hugann við efnið.

Sextíu milljarðar og mér var eiginlega nokk sama.

Svona dofinn er maður orðinn fyrir hörmungarfréttum.

En þetta eru peningar sem hefði mátt nýta til greiða niður skuldir sem nú falla á okkur öll.

Það þýðir auðvitað að við munum borga skuldir þessara fífla.

Ég og börnin mín.

Blóðið fór aftur að fossa um æðarnar.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?