Sárasjaldan nenni ég í bíó núorðið. Horfi frekar á bíómyndir af diskum heima hjá mér.
En ég verð að viðurkenna að nú langar mig í bíó. Og það meira að segja til að sjá nýjustu bíómynd Quentins Tarantinos!
Ég er ekki í hópi hans heitustu aðdáenda.
Reservoir Dogs var nokkuð sterk mynd á sínum tíma, en þegar ég sá hana aftur fyrir ekki svo löngu síðan kom í ljós að hún hafði elst mjög illa.
Pulp Fiction virtist líka nokkuð sterk á sínum tíma, en ekki nenni ég að sjá hana aftur til að gá hvort hún hafi líka elst svona illa.
Jackie Brown var bara einhver leiðindi, ef ég man rétt.
Kill Bill-myndirnar vöktu mér bara undrun yfir því að maður sem greinilega var ansi flinkur handverksmaður í kvikmyndagerð skuli ekki reyna að neitt aaaaaaðeins merkilegra en þá innantómu steypu.
En Inglorious Bastards langar mig að sjá.
Því mér sýnist þetta vera svona ekta mynd eins og ég hafði svo gaman af í bíó þegar ég var 13-15 ára.
Vondir þýskir hermenn með sínar Schmeisser-handvélbyssur. Menn að laumast inn í Hitlers-Þýskaland. Meira að segja Hitler sjálfur kemur við sögu, eins og í allra fínustu myndunum í gamla daga.
Í raun og veru langar mig bara að endurvekja stemmninguna frá því ég fór á Flóttann mikla, Arnarborgina og Byssurnar í Navarone og þess háttar myndir.
Að ekki sé minnst á Kelly´s Heroes!
Ganga svolítið í barndóm, eða altént unglingsdóm.
Vona bara að myndin standi undir þessum óskum!
Blogg
ÓUPPDREGNIR SKÍTHÆLAR!
14:41 › 29. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
