Jón Magnússon lögmaður og fyrrum alþingismaður Frjálslynda flokksins og Sjálfstæðisflokksins er einn þeirra sem sækja um embætti saksóknara í hrunmálum.
Jón var að ýmsu leyti merkur lögmaður áður en hann fór á þing, en umsókn hans um þetta starf hlýtur þó að vekja athygli og undrun.
Eins og margir vita er Jón faðir Jónasar Fr. Jónssonar, sem til skamms tíma var forstöðumaður Fjármálaeftirlitsins, og sem mörg spjót beinast nú að, því ýmsir telja hann einn af helstu sökudólgunum í hruninu.
Það er svo fjarri lagi að Jón geti tekið að sér slíkt saksóknaraembætti vegna þessara fjölskyldutengsla að líklega verður að líta á umsóknina sem einhvers konar kaldrifjaðan brandara.
Tilraun til að hæðast að og gera lítið úr rannsókninni á því hvað gerðist hér.
Og eigum við það skilið að hæðst sé að tilraunum okkar til að gera upp sakirnar?
Blogg
Á ÞETTA AÐ VERA FYNDIÐ?
13:27 › 28. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
