Ég er ekki fylgjandi Berufsverbot.
Því sjónarmiði að fólk eigi ekki að fá vinnu ef það hefur "vitlausar skoðanir".
En eigi að síður þykir mér þetta óhæfa.
Að Hannes Hólmsteinn Gissurarson eigi að vera í forsvari málstofu Háskóla Íslands um heimskreppuna og framtíð kapítalismans.
Ekki fyrst og fremst vegna að þess að Hannes er æjatollah íslensku nýfrjálshyggjunnar.
Ekki heldur vegna þess að sjónarmið hans og frjálshyggjunnar megi alls ekki heyrast varðandi heimskreppuna og kapítalismann.
Þó það sé vissulega svolítið svipað því og ef hugmyndafræðingur Einingarsamtaka kommúnista Marxistanna/Lenínistanna hefði verið fenginn til þess árið 1992 að annast málstofu um hrun Sovétríkjanna og framtíð kommúnismans.
Það er dálítið erfitt að sjá hið fræðilega gildi við hvorttveggja.
Nei, ástæðan fyrir því að mér finnst þetta óhæfa er sú að Hannes Hólmsteinn mun leynt eða ljóst, meðvitað eða ómeðvitað, líta á þetta sem tækifæri til að halda uppi vörnum fyrir sjálfan sig og vini sína í litlu ljótu klíkunni í Sjálfstæðisflokknum.
Davíðsklíkunni, hrunklíkunni, Eimreiðarhópnum, náhirðinni ... hvað sem við kjósum að kalla hana.
Þetta verður ekki fræðimennska, þetta verður varnarbarátta.
Það verður reynt að tjasla upp í hálfhrundar undirstöðurnar af styttu hins mikla og ástsæla leiðtoga.
Það verður reynt að telja unga fólkinu trú um að allir aðrir eigi sök á hruninu. Nema leiðtoginn mikli.
Því Hannes Hólmsteinn er ekki fræðimaður, hann er áróðursmaður, málsvari.
Hefur Háskóli Íslands ekki enn gert sér grein fyrir því?
Blogg
NEI, HÁSKÓLI ÍSLANDS, NEI!
09:12 › 28. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
