Áðan birti ég þennan pistil hér um yfirvofandi málstofu um heimskreppuna og framtíð kapítalismans sem Háskóli Íslands hefur séð sóma sinn í að biðja Hannes Hólmstein Gissurarson að annast.
Eftir að sá pistill birtist hafði samband við mig ungur stjórnmálafræðinemi sem valdi í fyrra að sitja svipaða málstofu um "íslenska velferðarríkið".
Það kom honum nokkuð á óvart að upp skyldi dúkka Hannes Hólmsteinn sem leiðbeinandi á þessari málstofu.
Enn meira kom honum á óvart að það sem Hannes hafði fram að færa voru ekkert annað en "brjálæðislegar árásir á velferðarkerfið", eins og stjórnmálafræðineminn ungi komst að orði.
"Þetta voru bara bollaleggingar um hvernig mætti takmarka velferðarkerfið sem mest, og koma sem mestu af því sem eftir væri í hendur einkaaðila," sagði hann.
Blogg
HANNES RÉÐIST AÐ VELFERÐARKERFINU
11:06 › 28. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.


















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
